Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Blakarnir hafa gefið tóninn fyrir framhaldið

14. apríl 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

Hamingjuóskir til Íslandsmeistara KA í blaki

Í gærkvöldi tryggði KA sér Íslandsmeistaratitilinn í blaki karla eftir að hafa sigrað HK 2 - 0 í úrslitaeinvíginu. Þetta var þó ekki eini titillinn sem þeir tóku á árinu, KA liðið vann alla titlana sem í boði voru á tímabilinu, bikarmeistarar, deildarmeistarar og nú Íslandsmeistarar.


Íslandsmeistararnir með bikarinn góða. Mynd: mbl.is

Þá er rétt að geta þess að þetta er annað árið í röð sem liðið vinnur þetta magnaða afrek.

Við sendum meisturum KA hamingjuóskir með frábæra frammistöðu, þeir hafa ásamt öðrum meistaraliðum bæjarins verið öllum íþróttaiðkenndum frábær fyrirmynd.

Árangur blakliðsins er að sjálfsögðu áskorun á Akureyri Handboltafélag að láta sitt ekki eftir liggja í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn en sú barátta hefst einmitt í kvöld þegar liðið tekur á móti HK.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson