Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Björn Óli Guðmundsson er einn af Íslandsmeisturum Hamranna

15. apríl 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

Hamrarnir Íslandsmeistarar utandeildar

Á laugardaginn síðasta var leikið til úrslita í utandeild karla. Þar áttust við Hamrarnir og Júmboys og var leikið í Strandgötunni í Hafnarfirði. Norðanmennirnir í Hömrunum tóku afgerandi forystu í fyrri hálfleik og leiddu með sjö mörkum í hálfleik 9-16 en slökuðu á í seinni hálfleik og hleyptu Júmboys inn í leikinn á ný. Leiknum lauk með tveggja marka sigri Hamranna 25-27 og því eru þeir Íslandsmeistarar utandeildarinnar 2011

Daginn áður lögðu Hamrarnir lið Kórdrengja 30-26.

Við sendum Hömrunum hamingjuóskir með titilinn sem þeir eru vel að komnir.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson