 Strákarnir stóðust álagið og skiluðu sér í úrslitaleikinn
| | 27. apríl 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar2. flokkur: Komnir í úrslit eftir sigur á FH í dagStrákarnir í 2. flokki létu ófarirnar hjá meistaraflokki í gær ekki trufla sig og unnu góðan sigur á FH í undanúrslitum Íslandsmótsins í dag. Leikurinn var reyndar ótrúlegur, það er óhætt að segja að lengi vel hafi einungis verið eitt lið á vellinum.
Eftir sextán mínútna leik var staðan 13-5 fyrir Akureyri og varð síðan 14-5. En þá slökknaði gjörsamlega á Akureyrarliðinu og FH skoraði án afláts og minnkuðu muninn niður í þrjú mörk, 16-13. Akureyri skoraði reyndar lokamark fyrri hálfleiks og hálfleiksstaðan því 17-13.
FH ingar voru hvergi nærri hættir, skoruðu fyrstu tvö mörk seinni hálfleiks og náðu loks að jafna í 20-20. Útlitið ekki bjart en þá tók reynsluboltinn Jóhann Gunnarsson til sinna ráða og raðaði inn mörkum og staðan breyttist í 27-22 og Akureyrarliðið búið að finna sig á ný. Það sem eftir lifði leiks var sigurinn aldrei í hættu, munurinn sveiflaðist frá fjórum mörkum upp í sex og lokatölur 33-28 og Akureyri þar með komið í úrslitaleikinn þar sem andstæðingurinn verður annaðhvort Selfoss eða Haukar. Bergvin leiddist ekki að spila við FH í dag Strákarnir spiluðu flotta vörn lengst af og Páll S. Jónsson góður í markinu.
Bergvin Gíslason fór mikinn í markaskoruninni með 13 mörk, Jóhann Gunnarsson 7, Hlynur Matthíasson, Jón Heiðar Sigurðsson og Ólafur Magnússon 3 mörk hver, Halldór Tryggvason og Valþór Guðrúnarson skoruðu 2 mörk hvor.
Hjá FH má segja að þrír leikmenn hafi séð um markaskorunina, Magnús Óli Magnússon skoraði 10, Halldór Guðjónsson 9, Þorkell Magnússon 7 en Ísak Rafnsson og Bogi Eggertsson 1 mark hvor.
Við óskum strákunum til hamingju með árangurinn, nú tekur við bið en úrslitaleikurinn er settur á þann 7. maí en staðsetning hefur ekki verið gefin upp. |