Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Sveinbjörn mætir galvaskur í Krikann á föstudaginn

28. apríl 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur 2: FH – Akureyri í Kaplakrika kl. 20:15 á föstudag

Það verður ekkert gefið eftir þegar Akureyri mætir til leiks í Kaplakrikanum á föstudagskvöldið klukkan 20:15. Strákarnir eru staðráðnir í að kvitta fyrir naumt tap í fyrsta leiknum og komast þannig á byrjunarreit í einvíginu á nýjan leik.

Við hvetjum alla stuðningsmenn sem hafa nokkur tök á að fjölmenna á leikinn og styðja strákana til sigurs í leiknum. Þeir sem ekki eiga tök á því að vera á leiknum geta glaðst yfir því að RÚV mun sýna leikinn í beinni útsendingu.

FH ingar ætla að sýna allar sýnar bestu hliðar við undirbúning leiksins og hafa úthlutað stuðningsmönnum Akureyrar sérstakt svæði í stúkunni og samkvæmt upplýsingum frá þeim eiga Akureyrarstuðningsmenn að ganga til sæta vinstra megin þegar gengið er í salinn.

Miðasala á leikinn hefst klukkan 17:00 og sérstök upphitun hefst klukkan 19:00. Auglýst verð á leikinn í Krikanum er kr. 1.500 en frítt fyrir 15 ára og yngri. Auk þess verða grillaðir hamborgarar í boði fyrir leikinn.

Leikur númer þrjú

Í leiðinni minnum við á að þriðji leikurinn verður í Íþróttahöllinni á Akureyri klukkan 16:00, sunnudaginn 1. maí og ljóst að það er lykilleikur í einvíginu og af honum má enginn missa.

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson