Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Gulli skoraði tvö í síðasta leik, hvað gerir hann í dag?

1. maí 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Troðfyllum Höllina og gefum allt í leikinn

Nú er ljóst að ekkert nema sigur kemur til greina í leik Akureyrar og FH í dag. Það er einfaldlega ekki í boði að láta FH-inga lyfta bikarnum hér á okkar heimavelli. Við þurfum ekki að hafa mörg orð um mikilvægi þess að troðfylla Höllina og berjast til síðasta manns.

Leikirnir tveir sem búnir eru hafa verið algjörlega stál í stál og í raun hefði hvort liðið sem var getað gengið af velli sem sigurvegari. Við höfum áður bent á stöðuna sem var uppi í einvígi KA og Vals frá 2002 og nú er hreinlega ekkert annað í stöðunni en að endurtaka leikinn frá vorinu 2002 en til þess þurfa allir að leggjast á eitt.


Frá fyrsta leik liðanna í úrslitarimmunni

Leikurinn hefst klukkan 16:00 í dag og húsið opnað klukkan 15:00.

Leikurinn er að sjálfsögðu í beinni útsendingu RÚV en vegna sérstakra aðstæðna verður ekki bein textalýsing frá honum hér á heimasíðunni í dag.

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson