Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Betri bílaþvott er erfitt að finna!

23. júlí 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

Akureyri Handboltafélag með fjáraflanir í dag

Leikmenn Akureyrar Handboltafélags eru með tvær skemmtilegar fjáraflanir í gangi í dag sem við hvetjum fólk að sjálfsögðu til að kíkja á og nýta sér. Í dag til 17:00 býður liðið upp á bílaþvott þar sem leikmenn liðsins þrífa sjálfir bílinn. Eins og sjá má á myndinni þá eru menn fáklæddir sem gerir þetta bara enn skemmtilegra.

Bílaþvotturinn er í portinu hjá SBA í Hjalteyrargötu. Verðið fyrir bílaþvottinn er 3000 krónur fyrir fólksbíla en 5000 krónur fyrir jeppa og jepplinga. Einnig bjóða leikmenn þá þjónustu að sækja bílinn fyrir þig, þrífa hann og skutla honum svo aftur til baka.

Ítarlegri upplýsingar gefa Guðlaugur: 669-9356 og Heimir: 862-6352

Svo verður fjáröflunarkvöld á Pósthúsbarnum í kvöld þar sem verður væntanlega gríðarlegt stuð. Húsið opnar klukkan 23:30 og lokar klukkan 04:00. Það kostar 1000 krónur inn og er ýmislegt á dagskrá og ætla leikmenn að sjá til þess að þeir sem mæta munu skemmta sér æðislega.

MC Fritz og DJ Homer munu sjá um tónlist kvöldsins. Leikmenn liðsins munu afgreiða á litla barnum og fullyrða þeir að óvæntir hlutir munu gerast frá 00:30-01:30.

Það er því um að gera að styðja strákana og skemmta sér konunglega á meðan. Akureyri Handboltafélag er að fara í keppnisferð til Þýskalands í ágúst mánuði og eru þessar tvær fjáraflanir liður í að safna pening fyrir þessari ferð.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson