 Það verður gaman að fylgjast með þeim félögum á mótinu



| | 6. september 2011 - Akureyri handboltafélag skrifarOpna Norðlenska mótið og leikmannakynningÁ fimmtudaginn byrjar handboltinn að rúlla hér norðan heiða þegar við fáum fimm lið í heimsókn í árlegt æfingamót sem líkt og í fyrra er kennt við Norðlenska. Liðin sem koma að þessu sinni eru úrvalsdeildarliðin: Afturelding, Haukar, Valur ásamt 1. deildarliðunum ÍR og Stjörnunni.
Hvert lið leikur fjóra leiki og hefst fjörið á fimmtudaginn en þá verða leiknir þrír leikir og ráða úrslit þeirra hvernig liðin raðast í riðla. Á föstudag leika öll liðin tvo leiki og ætti þá að vera ljóst með röð þeirra í riðlunum en mótinu lýkur svo á laugardag með því að liðin leika um sæti, efstu lið riðlanna leika um 1. sætið og þannig áfram.
Mótið er mikilvægur þáttur í undirbúningi liðanna fyrir átökin í Íslandsmótinu en N1 deildin hefst mánudaginn 26. september. Eins og kunnugt er tók Akureyrar liðið þátt í æfingamóti í Þýskalandi í lok ágústmánaðar.
Haukar og Afturelding léku um síðustu helgi á Ragnarsmótinu á Selfossi þar sem Haukar urðu í 2. sæti og Afturelding í 5. sæti. Sjá öll úrslit Ragnarsmótsins.
ÍR, Valur og Afturelding taka þessa dagana einnig
i þátt í Reykjavíkurmótinu og þar vitum við að Afturelding vann ÍR sem einnig er búið að tapa fyrir Fram. Valur vann öruggan sigur á Víkingum.
Mótið hefst fimmtudaginn 8. september með þrem leikjum og ráða úrslit þeirra niðurröðun liðanna í riðlana tvo. Athugið að tímasetning þessara leikja hefur breyst frá því sem auglýst er í dagskránni og hefjast þeir sem hér segir:| 18:00 | Akureyri | Afturelding | Leikur 1 | | 19:30 | Valur | Stjarnan | Leikur 2 | | 21:00 | ÍR | Haukar | Leikur 3 |
Vinningslið úr leikjum 1 og 2 hér að ofan ásamt tapliðinu úr leik 3 fara í riðil 1 og hin liðin fara í riðil 2.
Föstudaginn 9. september fer riðlakeppnin fram og leika öll liðin tvo leiki.
Dagskrá föstudagsins er þannig:
| 13:00 | Tapliðið úr leik 1 (lið 1) | Tapliðið úr leik 2 (lið 2) | Leikur 4 | | 14:30 | Sigurliðið úr leik 1 (lið 4) | Tapliðið úr leik 3 (lið 6) | Leikur 5 | | 16:00 | Lið 1 | Sigurliðið úr leik 3 (lið 3) | Leikur 6 | | 17:30 | Sigurliðið úr leik 2 (lið 5) | Lið 6 | Leikur 7 | | 19:00 | Lið 2 | Lið 3 | Leikur 8 | | 20:30 | Lið 4 | Lið 5 | Leikur 9 |
Laugardaginn 10. september lýkur mótinu með því að leikið verður um sæti.
| 11:00 | Leikur 5. sæti | Leikur 10 | | 12:30 | Leikur 3. sæti | Leikur 11 | | 14:00 | Leikur 1. sæti | Leikur 12 |
Leikinn er fullur leiktími eða 2 x 30 mínútur. Verðlaun veitt fyrir 1. sæti og einnig fá Besti markmaður, Besti varnarmaður, Besti sóknarmaður og Besti leikmaður mótsins viðurkenningar.
Aðgangseyrir á mótið er 1.000 krónur og gildir miðinn á alla leiki mótsins.
A.m.k. þrír fyrrum leikmenn Akureyrar eru væntanlegir með liðunum, Halldór Logi Árnason gekk til liðs við ÍR í sumar, Bjarni Jónasson leikur með Stjörnunni og Hafþór Einarsson varði mark Aftureldingar síðasta vetur. Leikmannakynning Að loknum leik Akureyrar og Aftureldingar á fimmtudaginn verður árleg leikmannakynning félagsins. Hún hefst klukkan 20:00 og verður í Íþróttahöllinni. Hópurinn sem lék í Þýskalandi á dögunum

|