 Mosfellingar hafa ekki verið nein lömb að leika við
| | 26. september 2011 - Akureyri handboltafélag skrifarLeikur dagsins: Afturelding – Akureyri, textalýsingN1 deildin rúllar af stað í dag þegar Akureyri Handboltafélag heldur í Mosfellsbæinn og leikur þar við heimamenn í Aftureldingu. Það er ekki laust við að það sé spenna í loftinu enda munum við að Akureyri lenti í mesta basli þar á síðasta tímabili.
Liðin mættust tvívegis á Opna Norðlenska mótinu fyrr í mánuðinum en nú er það ísköld alvaran sem gildir. Bjarni Fritzson, Guðmundur Hólmar Helgason og Ásgeir Jóhann Kristinsson misstu allir af Norðlenska mótinu en verða væntanlega með af fullum krafti í dag. Það kemur síðan í ljós hvort þeir Heimir Örn Árnason fyrirliði, Guðlaugur Arnarsson, Ásgeir Jónsson og Heiðar Þór Aðalsteinsson verði klárir í slaginn en þeir hafa verið tæpir vegna meiðsla.  Geir Guðmundsson er mættur til leiks á ný og lék vel á móti Aftureldingu á Opna Norðlenska í haust Í liði Aftureldingar mun væntanlega mæða mikið á markverðinum Hafþóri Einarssyni en hann hefur reynst Akureyringum erfiður eftir að hann gekk til liðs við Mosfellinga. Afturelding fékk til liðs við sig tvo Breta fyrir þetta tímabil og verður spennandi að sjá hvernig þeim vegnar í íslenska boltanum.
Við vonumst til að geta verið með beina textalýsingu hér á síðunni frá leiknum, okkar maður verður á staðnum og vonandi verður netsamband í húsinu.
Til að fylgjast með beinu lýsingunni skaltu smella hér! |