Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Lítil breyting á hópnum frá síðasta tímabili

27. september 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

Myndir frá leikmannakynningunni 2011

Í tengslum við Norðlenska mótið sem fram fór á dögunum var haldinn kynningarfundur þar sem rædd voru ýmis mál varðandi starfsemi Akureyrar Handboltafélags í vetur. Einn liður fundarins var kynning á leikmannahópnum sem Atli Hilmarsson stjórnaði.


Það var fín mæting á kynningarfundinn

Fram kom að við höfum fengið tvo nýja menn til liðs við okkur, Ásgeir Jónsson línumann sem kemur frá Aftureldingu og þá er Heiðar Þór Aðalsteinsson kominn til liðs við okkur á ný eftir að hafa leikið með Val á síðasta tímabili og Gróttu seinni hluta tímabilsins þar á undan.


Ásgeir og Heiðar Þór kynntir til leiks ásamt Daníel Einarssyni og Bergvin Gíslasyni

Þá er Geir Guðmundsson kominn á fulla ferð á ný eftir veikindin sem héldu honum frá keppni seinni hluta síðasta tímabils þannig að segja má að við höfum þar með fengið nýjan mann til leiks.

Þórir Tryggvason sendi okkur myndir frá leikmannakynningunni sem hægt er að skoða með því að smella hér.

Auk þessa var Martha Hermannsdóttir tannlæknir með fyrirlestur um skaðsemi munn- og neftóbaks og munum við fjalla betur um þann þátt á næstunni.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson