Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Toppslagurinn samkvæmt spá spekinganna

29. september 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins: Akureyri - FH í textalýsingu

Þá er fyrsti heimaleiksdagurinn runninn upp og mikil tilhlökkun í gangi. Við munum að sjálfsögðu bjóða þeim sem ekki eiga þess kost að mæta á leikinn að fylgjast með beinni textalýsingu hér á heimasíðunni.
Við vitum ekki annað en að FH ingar mæti með sitt sterkasta lið og gerum ráð fyrir hörkuleik.

Við hvetjum alla þá sem eiga færi á að mæta í Höllina, húsið verður opnað um klukkan 18:00 en leikurinn hefst klukkan 19:00.

Fjölmargir hafa orðið sér úti um stuðningsmannaskírteini en fyrir þá sem greiða fyrir einstaka leiki er aðgangseyrinn 1.200 krónur fyrir fullorðna en 500 krónur fyrir 15 ára og yngri. Bendum þó á að handboltaiðkendur í KA og Þór ættu að hafa fengið sérstaka boðsmiða á síðustu æfingu.

Smelltu hér til að skoða beinu lýsinguna sem uppfærist á 15 sekúndna fresti.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson