Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Sendum Herði Fannari kveðjur og ósk um skjótan bata

2. október 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

Hörður Fannar Sigþórsson ristarbrotinn

Nú er komið á daginn að Hörður Fannar Sigþórsson ristarbrotnaði í leiknum gegn FH á fimmtudagskvöldið. Samkvæmt heimildum okkar þá er brotið bein í ristinni og þýðir það að Hörður Fannar verður frá í nokkrar vikur. Hörður fer í frekari myndatökur í vikunni og þá mun væntanlega koma betur í ljós til hvaða aðgerða þarf að grípa og þá jafnframt hvenær Hörður verður leikhæfur á ný.


Hugað að meiðslum Harðar Fannars í leiknum

Það lengist því meiðslalistinn hjá Akureyri Handboltafélagi og var þó ekki á hann bætandi.

Næsti leikur Akureyrar er útileikur gegn Fram í Safamýrinni næstkomandi miðvikudag klukkan 18:30. Samkvæmt heimasíðu SportTV ætlar stöðin að sýna leikinn í beinni.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson