 Nú þarf að taka á öllu sem til er
| | 3. október 2011 - Akureyri handboltafélag skrifarAkureyri sækir Fram heim á miðvikudaginn3. umferð N1 deildar karla hefst miðvikudaginn 5. október með leik Fram og Akureyrar. Leikið verður í Framhúsinu í Safamýrinni og hefst leikurinn klukkan 18:30. Framliðið hefur byrjað með miklum glæsibrag og er með fullt hús stiga eftir umferðirnar tvær, útisigrar gegn FH og Haukum þannig að það er eðlilega mikil hamingja í þeirra herbúðum.
Framliðið er töluvert breytt frá síðasta tímabili, nýir leikmenn eru t.d. Ingimundur Ingimundarson, Sigurður Eggertsson, Ægir Hrafn Jónsson svo og markvörðurinn Sebastian Alexandersson. Frá Fram fóru t.d. bræðurnir Magnús og Hákon Stefánssynir (kenndir við Fagraskóg), Magnús fór til ÍBV og Hákon til Stjörnunnar. Einnig fór línumaðurinn Haraldur Þorvarðarson til Stjörnunnar, skyttan Andri Berg Haraldsson fór til FH svo einhverjir séu nefndir. Þá urðu þjálfaraskipti, Reynir Þór Reynisson lét af störfum og við tók Einar Jónsson sem hefur stýrt kvennaliði Fram undanfarin ár og gerir enn.
Það er alveg á hreinu að þetta verður erfiður leikur og mikilvægt að stuðningsmenn Akureyrar á höfuðborgarsvæðinu fjölmenni og styðji við sína menn sem hafa fengið að kenna illilega á meiðslum upp á síðkastið og leikmannahópurinn þunnskipaður fyrir vikið.
Samkvæmt heimildum okkar þá mun SportTV sýna leikinn í beinni útsendingu á vefnum og munum við setja inn link á útsendinguna. |