Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Til hamingju Bjarni

6. desember 2011 - Akureyri handboltafélag skrifar

Bjarni Fritzson í liði umferða 1-7 og besta umgjörðin á Akureyri

Í hádeginu í dag var tilkynnt um val HSÍ á bestu leikmönnum og þátttakendum í umferðum 1-7 í N1 deild karla. Að þessu sinni dreifast útnefningarnar töluvert á milli liðanna og á Akureyri Handboltafélag einn fulltrúa í úrvalsliði umferðanna en það er Bjarni Fritzson sem er valinn besta hægri skyttan.

Bjarki Már Elísson, hornamaður úr HK, var útnefndur besti leikmaður umferðanna en Bjarki hefur leikið afar vel með HK-liðinu á leiktíðinni og er sem stendur markahæsti leikmaður deildarinnar.

Lið umferða 1-7 er þannig skipað:
Markvörður: Hlynur Morthens, Val
Línumaður: Ægir Hrafn Jónsson, Fram
Vinstri hornamaður: Bjarki Már Elísson, HK
Hægri hornamaður: Gylfi Gylfason, Haukum
Vinstri skytta: Ólafur Gústafsson, FH
Hægri skytta: Bjarni Fritzson, Akureyri Handboltafélag
Miðjumaður: Tjörvi Þorgeirsson, Haukum

Besti leikmaðurinn: Bjarki Már Elísson, HK
Besti varnarmaðurinn: Ægir Hrafn Jónsson, Fram

Besti þjálfarinn: Aron Kristjánsson, Haukum

Bestu dómarar: Anton Pálsson og Hlynur Leifsson

Besta umgjörðin: Akureyri Handboltafélag

Við óskum öllum ofangreindum til hamingju með árangurinn og ekki síst frábærum stuðningsmönnum Akureyrar Handboltafélags sem eiga ekki lítinn þátt í að skapa frábæra umgjörð um leikina.


Það er gott að eiga fjölmenna og öfluga stuðningsmannasveit í stúkunni.

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson