 Tími Odds mun áreiðanlega koma með landsliðinu
| | 15. janúar 2012 - Akureyri handboltafélag skrifarOddur verður væntanlega ekki í hóp gegn KróötumGuðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari er búinn að tilkynna 15 af þeim sextán leikmönnum sem hann má nota í riðlakeppninni í Serbíu. Það eru Oddur Gretarsson og Rúnar Kárason sem hann heldur utan hópsins en spurningamerkið er við markvörðinn Aron Rafn Eðvarðsson úr Haukum sem hélt til Serbíu í dag til að vera til taks ef veikindi Björgvins Páls Gústavssonar leyfa ekki að hann spili.
Það kemur vissulega á óvart að Oddur skuli ekki vera valinn í hópinn því að hann átti t.d. frábæra innkomu í leiknum gegn Finnum á föstudagskvöldið með fimm mörk úr fimm skotum þær fáu mínútur sem hann fékk til að sanna sig.
Íslenska liðið má nota sextán leikmenn í riðlakeppninni en ef það kemst áfram má skipta út tveim leikmönnum. Það er óneitanlega sérkennilegt að annað stórmótið í röð virðist Guðmundur ætla að leika riðlakeppnina með aðeins einn vinstri hornamann. Það mun því mikið mæða á Guðjóni Val Sigurðssyni og þó að hann sé frábær leikmaður þá setur maður spurningamerki við þessa ákvörðun Guðmundar.
U20 ára landsliðið lék gegn Finnum á laugardag En það eru fleiri landslið Íslands í verkefnum þessa dagana, þrír leikmenn Akureyrar Handboltafélags léku með U20 ára liðinu vináttulandsleik gegn A landsliði Finna á laugardaginn. Þetta voru Geir Guðmundsson, Guðmundur Hólmar Helgason og Ásgeir Jóhann Kristjánsson.
Eftir sveiflukenndan leik unnu Finnar þriggja marka sigur, 30-27. Geir Guðmundsson var langatkvæðamestur íslensku strákanna með 8 mörk en næstir komu Guðmundur Hólmar og Garðar Sigurjónsson en hvor um sig skoraði 4 mörk. Samkvæmt umfjöllun Morgunblaðsins voru þeir félagar yfirburðamenn í Íslenska liðinu. Guðmundur þurfti reyndar að yfirgefa völlinn um tíma vegna meiðsla í andliti en vonandi voru þau ekki alvarleg. Guðmundur Hólmar í leiknum gegn Finnum. Mynd: mbl.is
|