 Efstu þrjú sætin í kjörinu
| | 18. janúar 2012 - Akureyri handboltafélag skrifarÍþróttamaður ársins 2011 á Akureyri var valinn í kvöldSundkonan Bryndís Rún Hansen var í kvöld útnefnd íþróttamaður ársins á Akureyri árið 2011 en þetta er þriðja árið í röð sem Bryndís verður fyrir valinu. Árið 2011 var klárlega hennar besta á ferlinum, hún vann fimm Íslandsmeistaratitla, setti fimm Íslandsmet og vann auk þess norskan meistaratitil, en Bryndís býr í Noregi þar sem hún keppir fyrir Bergensvømmerne.
Oddur Gretarsson, leiksmaður Akureyrar Handboltafélags varð í öðru sæti í kjörinu til Íþróttamanns Akureyrar 2011. Oddur hefur leikið með öllum yngri landsliðum Íslands í handbolta og verið lykilleikmaður í þeim. Að sama skapi er Oddur einn af mikilvægustu leikmönnum Akureyrar Handboltafélags og varð m.a. deildarmeistari með liðinu síðasta vor. Oddur tekur þessa dagana þátt í Evrópumeistaramótinu í Serbíu með A-landsliði Íslands og fór einnig með A-landsliðinu til Svíðþjóðar á HM í janúar 2011.
Helga Hansdóttir, Íþróttamaður KA 2011, varð í þriðja sæti í kjörinu. Helga, sem er júdókona átti mjög gott ár.
Akureyri Handboltafélag óskar þeim öllum til hamingju með viðurkenningar sínar. Allur hópurinn með viðurkenningar sínar
 Katrín Emma Jónsdóttir tók við viðurkenningu Odds Gretarssonar
 Katrín Emma ásamt Eiríki Björgvinssyni bæjarstjóra og Þresti Guðjónssyni formanni ÍBA
|