 Heldur betur áskorun á liðið framundan
| | 14. febrúar 2012 - Akureyri handboltafélag skrifarSpennandi hlutir framundan – útileikur við GróttuÁ fimmtudaginn hefst þriðji og síðasti hluti N1-deildarinnar hjá körlum. Það eru sem sé eftir sjö umferðir þar sem öll liðin leika innbyrðis. Akureyri situr nú í 5. sæti deildarinnar og á framundan fjóra útileiki og þrjá heimaleiki. Næstu tveir leikir eru á útivelli, gegn Gróttu nú á fimmtudaginn og síðan gegn Aftureldingu þann 1. mars.
Það er sem sé býsna langt í næsta heimaleik en hann er ekki á dagskrá fyrr en fimmtudaginn 8. mars þegar við fáum HK í heimsókn. Þar á eftir kemur útileikur gegn Haukum, heimaleikur gegn FH sunnudaginn 18. mars, síðan er útileikur gegn Fram 22. mars og að endingu heimaleikur gegn Val fimmtudaginn 29. mars.
Deildin er í raun galopin, aðeins munar fjórum stigum á Akureyri í 5. sætinu og Haukum sem eru í 1. sætinu þannig að mikilvægt er að allir, jafnt leikmenn og stuðningsmenn leggist á eitt og haldi fullri einbeitingu í þeim leikjum sem eftir eru.
Við lentum í erfiðleikum í fyrsta hluta mótsins en liðið steig heldur betur upp í framhaldinu og náði besta árangri allra liða í öðrum hlutanum, þ.e.a.s. í umferðum 8 - 14. Stigasöfnun liðanna í þeim hluta var sem hér segir: Akureyri 11 stig, FH 10 stig, HK 10 stig, Haukar 8 stig, Fram 7 stig, Valur 7 stig, Afturelding 3 stig og Grótta 0 stig.
Nú þarf bara að halda dampinum áfram allt til enda og sjá svo hvar við stöndum eftir næstu sjö umferðir. |