Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Strákarnir hafa staðið sig vel í vetur

2. mars 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

2. flokkur: Tveir stórleikir í Síðuskóla á laugardaginn

Það verður hart barist í Íþróttahúsi Síðuskóla á laugardaginn þegar Akureyri-1 og Akureyri-2 leika gegn Valsmönnum.
Klukkan 15:30 leika Akureyri-1 og Valur-1 sem er núverandi topplið deildarinnar og þarf Akureyri-1 nauðsynlega að sigra til að ná toppsætinu af þeim.
Strax á eftir eða klukkan 17:00 mætast Akureyri-2 og Valur-2 en sá leikur er liður í 2. deildinni. Þetta er ekki síður mikilvægur leikur til að Akureyri-2 haldi sig í toppbáráttunni.

Boðið verður upp á veitingar, kaffi og bakkelsi auk þess sem ekkert kostar inn á leikina. Þetta er kjörið tækifæri til að sjá og styðja næstu kynslóð handknattleiksmanna á Akureyri.

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson