 HK liðið hefur leikið afar vel í vetur
| | 7. mars 2012 - Akureyri handboltafélag skrifarHeimaleikur gegn HK á fimmtudaginnEftir langa bið eftir heimaleik er hún loksins á enda því að á fimmtudaginn fáum við HK í heimsókn. Þótt ótrúlegt megi virðast þá er þetta einungis annar heimaleikur Akureyrar á þessu ári en andstæðingarnir í síðasta heimaleik voru einmitt líka HK.
Eftir sigra í síðustu þrem síðustu leikjum (öllum á útivöllum) er Akureyri komið í 4. sæti N1 deildarinnar, stigi á eftir HK sem er í 3. sætinu. Baráttan um sæti meðal fjögurra efstu liða er gríðarhörð og ekkert má gefa eftir til að halda því. Það má því líta á alla leikina fimm sem eftir eru í deildinni sem hreina úrslitaleiki.
Í síðasta leik liðanna má segja að allt hafi verið á suðupunkti en HK náði að knýja fram tveggja marka sigur á lokamínútu leiksins. Óhætt er að fullyrða að baráttan verður ekki síður í fyrirrúmi á fimmtudaginn og ljóst að Akureyri ætlar ekki að tapa tvisvar í röð fyrir HK á heimavelli.
Leikurinn hefst eins og venjulega klukkan 19:00 á fimmtudaginn, veitingar fyrir stuðningsmannaklúbbinn verða bornar fram um klukkan 18:15.
 |