 Páll Jónsson markvörður hjá Akureyri - 1
| | 21. mars 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar2. flokkur: Akureyri á toppi 1. deildar - Breyting á leiktímaStrákarnir í Akureyri – 1 léku tvo útileiki um síðustu helgi í deildarkeppninni. Á laugardaginn léku þeir gegn FH og unnu sannfærandi fjórtán marka sigur, 20 – 34 eftir að hafa leitt í hálfleik 7 – 20.
Á sunnudaginn var haldið á Selfoss í ljónagryfjuna til nýkrýndra bikarmeistara. Strákarnir náðu ekki upp sama dampi og gegn FH deginum áður og nýttu illa færin gegn frábærum markverði Selfyssinga.
Jafnt var í hálfleik 13 -13 en Selfyssingar höfðu frumkvæðið í seinni hálfleik og voru til að mynda þrem mörkum yfir þegar stutt var eftir. En með seiglu tókst Akureyri að jafna í 25-25 og þegar upp var staðið voru menn tiltölulega sáttir með að fara með eitt stig úr leiknum.
Þessi úrslit þýða að Akureyri er eitt á toppi 1. deildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir. Næstkomandi sunnudag eiga strákarnir heimaleik gegn HK sem situr í áttunda og næstneðsta sætinu. Sá leikur verður í KA heimilinu klukkan 12:00. Helgina þar á eftir er lokaleikurinn, heimaleikur gegn FH sem er í sjöunda sæti deildarinnar.
Það er því algjörlega í höndum strákanna sjálfra að tryggja sér deildarmeistaratitilinn en til þess má ekkert slaka á því Valsmenn eru aðeins einu stigi á eftir.
Akureyri – 2 leikur einnig síðustu leiki sína í 2. deildinni þessar sömu helgar, heimaleikur við Aftureldingu - 2 á laugardaginn klukkan 11:00 í KA heimilinu og heimaleikur við FH – 2 um þarnæstu helgi. Akureyri – 2 er sem stendur í 4. sæti deildarinnar en Afturelding og FH í 2. og 3. sæti þannig að þetta verða töff leikir hjá strákunum. Reyndar er spurning hvað FH-2 gerir en þeir mættu ekki til leiks í síðustu umferð þegar þeir áttu að fara til Ísafjarðar og var því dæmt 10 – 0 tap í leiknum. |