Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Bjarni er búinn að eiga magnað tímabil í vetur

27. mars 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Morgunblaðið valdi Bjarna Fritzson í lið 20. umferðarinnar

Morgunblaðið birtir í dag val sitt á liði 20. umferðar N1 deildar karla en blaðið hefur valið leikmenn hverra umferða. Að þessu sinni á Akureyri Handboltafélag einn fulltrúa í liðinu, Bjarni Fritzson er valinn í stöðu hægri hornamanns en þetta er í 11. sinn sem Bjarni er í liði umferðarinnar.

Að mati Morgunblaðsins er Jóhann Gunnar Einarsson, Fram leikmaður umferðarinnar og jafnframt hægri skytta umferðarinnar. Annars er lið 20. umferðar þannig skipað:

Markvörður: Birkir Ívar Guðmundsson, Haukum (2. skipti)
Vinstra horn: Jóhann Jóhannsson, Afturelding (1. skipti)
Vinstri skytta: Anton Rúnarsson, Val (6. skipti)
Línumaður: Atli Ævar Ingólfsson, HK (4. skipti)
Leikstjórnandi: Rangar Jóhannsson, FH (2. skipti)
Hægri skytta: Jóhann Gunnar Einarsson, Fram (3. skipti)
Hægra horn: Bjarni Fritzson, Akureyri Handboltafélag (11. skipti)

Varnarmaður: Vilhelm Gauti Bergsveinsson, HK (3. skipti)

Heimasíðan óskar þeim öllum til hamingju með viðurkenninguna.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson