Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það má ekkert slaka á í leikjum dagsins

31. mars 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Fjörugur handboltadagur í dag, laugardag

Það verður heilmikið um að vera í handboltanum á Akureyri í dag. Fjörið hefst í Íþróttahöllinni klukkan 12:30 þegar Akureyri-2 og FH-2 mætast í lokaleik sínum í 2. deild annars flokks.
Strax á eftir eða klukkan 14:00 er í raun úrslitaleikur 1. deildarinnar hjá 2. flokki. Þá mætast Akureyri-1 og FH-1 og þarf Akureyri-1 að ná stigi úr leiknum til að verða deildarmeistari. Það er svo sannarlega hugur í strákunum að tryggja sér deildarmeistaratitilinn.


Vonandi brosa Jón Heiðar og Bergvin hringinn eftir leiki dagsins

Lokaleikur hjá KA/Þór
Klukkan 16:00 mætast svo KA/Þór og Valur í N1 deild kvenna og má segja að sá leikur sé á sama hátt úrstlitaleikur. Með sigri fer KA/Þór í úrslitakeppnina en ef Valur nær stigi verða þær deildarmeistarar.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson