 Heldur betri árangur spámannanna en síđast
| | 3. apríl 2012 - Akureyri handboltafélag skrifarNiđurstađa spámannanna í lokaumferđinniNú er búiđ ađ fara yfir spádóma ţeirra sem tóku ţátt hér á heimsíđunni um úrslit lokaumferđar N1 deildarinnar. Alls tóku 40 ţátt, allir 40 spáđu rétt um ađ Akureyri sigrađi Val, 38 spáđu rétt um ađ Afturelding sigrađi Gróttu, 22 voru sannspáir um ađ HK sigrađi Fram en ađeins 9 höfđu rétt fyrir sér um ađ FH sigrađi Hauka.
Ađ ţessu sinni voru tveir međ alla fjóra leikina rétta en ţeir voru: Axel Ađalgeirsson og Arnór Sigmarsson. Hvorugur spáđi reyndar réttum markafjölda í leikjunum, Axel spáđi ţó rétt um ađ Akureyri skorađi 27 mörk (hann spáđi 27 - 24) og er má ţví segja ađ hann hafi veriđ sjónarmun á undan.
Eins og viđ var ađ búast gekk mönnum erfiđlega ađ spá um markafjölda í leikjunum, ađeins einn náđi ađ spá rétt um úrslit leiks, ţađ var enginn annar en Siguróli Sigurđsson sem spáđi réttum markafjölda í leik Akureyrar og Vals eđa 27 - 25.
Fimm spáđu rétt um ađ Valur skorađi 25 mörk, fjórir spáđu réttum markafjölda hjá Akureyri, fjórir spáđu rétt um ađ Grótta skorađi 26 mörk og sömuleiđis sáu fjórir fyrir ađ HK skorađi 26 mörk. Einn spáđi réttum markafjölda hjá Fram og sömuleiđis einn hjá FH. Ţađ spáđi hins vegar enginn réttum markafjölda hjá Aftureldingu eđa Haukum. |