Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Gulli kominn með tvo syni í hús

13. apríl 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Guðlaugur og Brynja Dögg eignuðust son í gær

Það fjölgar stöðugt í Akureyrar handboltafjölskyldunni. Þeim Guðlaugi Arnarssyni og Brynju Dögg Hermannsdóttur fæddist sonur í gær, fimmtudag.

Drengurinn var engin smásmíði, 18 merkur að þyngd þannig að hann ætti að hafa alla burði til að standa vaktina í vörninni með sóma eins og hann á kyn til.

Fyrir eiga þau soninn Arnar Elí þannig að þau eru alvön í bransanum.





Gulli er ekki óvanur að taka á móti hamingjuóskum

Við sendum Gulla og Brynju hamingjuóskir og góðs gengis með hraðvaxandi fjölskyldu.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson