 Bergvin var atkvæðamikill í dag
| | 23. apríl 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar2. flokkur: Sigur á FH og Akureyri komið í 4-liða úrslitÚrslitakeppni 2. flokks er hafin en það voru átta lið sem hófu keppnina. Akureyri fékk FH í átta liða úrslitunum en aðeins þarf að vinna einn leik hjá þeim. Leikið var í Íþróttahöllinni í dag að viðstöddum á þriðja hundrað áhorfenda.
Akureyri tók strax forystu í leiknum 6 – 2 en náði ekki að hrista FH-ingana almennilega af sér. FH náði að saxa á forskotið sem varð minnst eitt mark 11 – 10. Þá var Akureyrarstrákum nóg boðið og skoruðu næstu fjögur mörk en staðan í hálfleik var 16-11 Akureyri í vil.
Seinni hálfleikur var í svipuðum dúr, Akureyri alltaf með frumkvæðið en FH gafst aldrei upp og undir lok leiksins náðu FH ingar aftur að minnka muninn í eitt mark en Akureyri kláraði leikinn með tveggja marka sigri 28-26 og strákarnir þar með komnir áfram í 4- liða úrslit þar sem þeir glíma væntanlega við Gróttu.
Reyndar má segja að strákarnir hafi sýnt af sér töluvert kæruleysi í dag, þeir náðu að skapa sér ógrynni af færum en mörgum þeirra var klúðrað, skot í tréverkið og markvörður FH hirti fjölmörg dauðafæri.
Mörk Akureyrar: Bergvin Þór Gíslason 10 mörk, Snorri Björn Atlason 4, Valþór Atli Guðrúnarson 4, Halldór Tryggvason 3, Jón Heiðar Sigurðsson 3, Hlynur Elmar Matthíasson 2 og Ólafur Jóhann Magnússon 2 mörk. Í markinu átti Páll Jónsson flottan leik þó við höfum ekki tölu á skotunum sem hann varði.
Hjá FH var Magnús Magnússon markahæstur með 9 mörk og Bogi Eggertsson næstur með 6 mörk. Markvörður FH, Ágúst Björgvinsson átti magnaðan leik og geta FH-ingar þakkað honum að sigur Akureyrar varð ekki stærri. Strákarnir geta hæglega farið alla leið og tekið Íslandsmeistaratitilinn líka Eins og áður segir mæta strákarnir Gróttu í næsta leik en ekki er búið að festa leiktímann. Akureyri er þó með heimaleikjaréttinn en strákarnir þurfa að mæta einbeittari í þann leik en þeir gerðu í dag. |