 Hörður Fannar stóð fyrir sínu í leiknum
| | 25. apríl 2012 - Akureyri handboltafélag skrifarEinvígi Akureyrar og FH á enda þetta áriðÍslandsmeistarar FH reyndust seigari á lokasprettinum og tryggðu sér keppnisréttinn um titilinn með sigri í 4. leiknum í kvöld. Leikurinn var sveiflukenndur, Akureyri byrjaði leikinn vel og hafði frumkvæðið í leiknum til að byrja með, höfðu yfir 4-2 og 5-3. FH var þó aldrei langt undan og náði að jafna í 5-5 og í kjölfarið var jafnt á öllum tölum upp í stöðuna 8-8. Þá kom slakur kafli, Akureyringar voru reknir útaf, voru um tíma tveimur færri og það nýttu FH ingar sér til hins ítrasta og náðu fimm marka forskoti 8-13.
Með góðum lokaspretti tókst þó að vinna muninn niður í tvö mörk þannig að hálfleiksstaðan var 12-14 fyrir FH. Geir Guðmundsson stóð vel fyrir sínu FH skoraði fyrstu tvö mörkin í seinni hálfleik og hélst munurinn 3 til 4 mörk allt þar til að FH náði mest fimm marka mun í stöðunni 18-23 en þá loksins náðu heimamenn að bíta frá sér. Vörnin og Sveinbjörn hrukku í gang og með fjórum mörkum í röð tókst að minnka muninn í eitt mark 22-23 og spennustigið í Höllinni orðið býsna hátt.
Akureyri fékk fjölmörg tækifæri til að jafna leikinn í kjölfarið en klaufagangur í sókninni, misnotað vítakast o.fl. kom í veg fyrir að það tækist. Markataflan sýndi 23-24, 24-25 og loks 25-26. FH kláraði síðan leikinn með tveim síðustu mörkum leiksins sem endaði 25-28 fyrir Hafnfirðinga.
Það verður að segjast að FH liðið virkaði sterkara í þessum leik, sérstaklega átti vörn Akureyrar í gríðarlegu basli með skytturnar Ólaf Gústafsson og Ragnar Jóhannsson sem skoruð átta mörk hvor í leiknum. Ragnar Jóhannsson skorar eitt af átta mörkum sínum Slaki kaflinn í fyrri hálfleik þegar FH skoraði fimm mörk í röð fór eiginlega alveg með Akureyrarliðið. Þann mun tókst aldrei að brúa alveg og því fór sem fór.
Enn einu sinni átti Hörður Fannar Sigþórsson stórleik og skoraði sjö mörk í leiknum en Hörður hefur að öðrum ólöstuðum verið besti maður liðsins í úrslitakeppninni. Geir Guðmundsson átti einnig fínan leik með fimm glæsimörk. Hörður Fannar skoraði sjö mörk í dag Í lok leiksins var sem skorti áræði og að taka af skarið í sókninni, allt snerist um að koma boltanum inn á línuna sem FH vörnin stóðst þokkalega vel.
Það féll sem sé ekkert með liðinu í dag, áhorfendur voru ekki alls kostar sáttir með dómgæsluna hjá þeim Hlyni og Antoni og fannst halla töluvert á heimamenn. Þrátt fyrir það verður að viðurkenna að sigur FH verður að teljast sanngjarn þegar upp er staðið.
Mörk Akureyrar: Hörður Fannar Sigþórsson, 7, Bjarni Fritzson 5 (1 úr víti), Geir Guðmundsson 5, Heimir Örn Árnason 4 og Oddur Gretarsson 4. Sveinbjörn Pétursson byrjaði leikinn með látum og varði vítakast. Sveinbjörn átti síðan góðan sprett í seinni hálfleiknum og endaði með 13 varin skot. Stefán Guðnason kom inná um tíma í fyrri hálfleik og varði 1 skot.
Þar með er leiktíðinni lokið að þessu sinni hjá meistaraflokki en nú setja menn allt traust á strákana í 2. flokki sem eiga góðan möguleika á Íslandsmeistaratitlinum. |