 Góða ferð strákar

| | 22. júní 2012 - Akureyri handboltafélag skrifarU-20:Guðmundur Hólmar og Geir á leið til TyrklandsÍslenska U-20 landslið karla er á leiðinni til Tyrklands í lokakeppni Evrópumótsins en þar verður leikið dagana 3. - 15. júlí. Þeir frændur Guðmundur Hólmar Helgason og Geir Guðmundsson eru fulltrúar Akureyrar Handboltafélags í liðinu. Þjálfarar eru Geir Sveinsson og Kristján Halldórsson. Við óskum Guðmundi og Geir góðrar ferðar til Tyrklands og velgengni að sjálfsögðu en andstæðingar Íslands í riðlinum eru Danmörk, Sviss og Svíþjóð.
Íslenski hópurinn er þannig skipaður: Markmenn: Brynjar Darri Baldursson, Stjarnan Einar Ólafur Vilmundarson, Haukar Útileikmenn: Agnar Smári Jónsson, Valur Árni Benedikt Árnason, Grótta Bjartur Guðmundsson, Valur Einar Sverrisson, Selfoss Garðar Sigurjónsson, Fram Geir Guðmundsson, Akureyri Guðmundur Hólmar Helgason, Akureyri Ísak Rafnsson, FH Leó Snær Pétursson, HK Magnús Óli Magnússon, FH Pétur Júníusson, Afturelding Sveinn Aron Sveinsson, Valur Víglundur Jarl Þórsson, Stjarnan Þráinn Orri Jónsson Grótta |