 Ţađ hafa allaf veriđ hörkuleikir á milli Akureyrar og FH
| | 21. september 2012 - Akureyri handboltafélag skrifarRisaleikur Akureyrar og FH á mánudaginn klukkan 19:00Ţađ má gera ráđ fyrir hörkuleik á mánudagskvöldiđ ţegar Akureyri tekur á móti FH í fyrsta leik N1 deildar karla ţetta tímabiliđ. Undanfarin ár hafa ţessi liđ trúlega mćst oftast af öllum liđum deildarinnar og undantekningarlítiđ hafa leikir ţeirra veriđ jafnir og spennandi.
Nokkrar breytingar hafa orđiđ á leikmannahópi beggja liđa frá ţví í fyrra. Hjá Akureyri eru ţćr helstar ađ Sveinbjörn Pétursson, markvörđur er farinn til EHV Aue í Ţýskalandi, Hörđur Fannar Sigţórsson leikur nú međ Kyndil í Fćreyjum auk ţess sem Guđlaugur Arnarsson lagđi skóna á hilluna. Ađrir leikmenn sem fóru eru Daníel Örn Einarsson sem fór til HK, Jón Heiđar Sigurđsson til Gróttu, Halldór Tryggvason til FH og Hlynur Elmar Matthíasson til Víkings.
Akureyri hefur hins vegar fengiđ tvo markverđi, Jovan Kukobat frá Serbíu og Tomas Olason sem kemur frá Danmörku. Auk ţess hefur liđiđ endurheimt Andra Snć Stefánsson og Hrein Hauksson sem báđir komu reyndar lítillega viđ sögu síđasta vetur. Ţar fyrir utan eru nokkrir gríđarlega öflugir strákar úr Íslandsmeistaraliđi 2. flokks sem munu berjast um sćti í liđinu. Leikmannahópur Akureyrar 2012-2013 FH hefur misst nokkra öfluga leikmenn ens og línumanninn Atla Rúnar Steinţórsson og markvörđinn Pálmar Pétursson en báđir eru hćttir. Skyttan Örn Ingi Bjarkason er genginn til liđs viđ Aftureldingu og skyttan Hjalti Pálmason hefur tekiđ sér hlé frá boltanum. FH hefur fengiđ ţrjá leikmenn frá Fram, hornamanninn Einar Rafn Eiđsson, Jóhann Karl Reynisson og Arnar Birkir Hálfdánsson. Auk ţess sem okkar mađur Halldór Tryggvason er kominn á línuna hjá ţeim eins og áđur segir.
Í viđtali viđ Vikudag segir Heimir Örn Árnason, annar ţjálfari Akureyrar ađ veturinn leggist vel í sig. „Ţađ er alltaf sett stefnan á ađ vinna ţá titla sem í bođi eru, annars vćri mađur ekkert í ţessu“, segir Heimir sem segist mjög sáttur viđ leikmannahópinn og ađ liđiđ sé klárt í slaginn.
Ţađ er nokkuđ ljóst ađ N1 deildin verđur óvenju jöfn í vetur og ţví verđur hver leikur geysilega mikilvćgur. FH liđiđ er öflugt, ţví er spáđ 2. sćti í deildinni ţannig ađ nú dugar ekkert annađ en ađ byrja af fullum krafti, jafnt leikmenn sem stuđningsmenn. Frá leik liđanna í fyrravor, Geir Guđmundsson klínir boltanum upp í samskeytin Ţađ má búast viđ miklu fjölmenni í Höllinni og ţví hvetjum viđ áhorfendur til ađ mćta tímanlega og rétt ađ benda á ađ miđasalan gengur mun hrađar ef greitt er međ peningum en ađ sjálfsögđu er einnig tekiđ á móti greiđslukortum.
 |