Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Leikmenn Aftureldingar komu sáu og sigruðu í 5. umferðinni

23. október 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Lið 5. umferðar samkvæmt Morgunblaðinu og handbolti.org

Þá hafa Morgunblaðið og handbolti.org birt lista yfir bestu leikmenn 5. umferðar N1 deildarinnar. Að þessu sinni á Akureyri Handboltafélag engan liðsmann sem helgast væntanlega af því að liðið átti afleitan leik í umferðinni. En það gefst tækifæri til að sýna á sér betri hliðina á laugardaginn þegar liðið mætir Haukum á heimavelli þeirra í Hafnarfirðinum.

Lið Morgunblaðsins er þannig skipað:
Vinstra horn: Bjarki Jónsson, FH
Vinstri skytta: Róbert Aron Hostert, Fram
Leikstjórnandi: Jóhann Gunnar Einarsson, Fram
Línumaður: Sigurður Ágústsson, FH
Hægri skytta: Árni Steinn Steinþórsson, Haukum
Hægra horn: Hilmar Stefánsson, Aftureldingu
Markvörður: Davíð Svansson, Aftureldingu
Varnarmaður: Jón Þorbjörn Jóhannsson Haukum

Davíð Svansson var jafnframt valinn leikmaður umferðarinnar.

Allir þessir eru í fyrsta sinn valdir í lið umferðarinnar.

Á Handbolti.org er sömuleiðis búið að birta þeirra útgáfu af liði 5. umferðar og er reyndar ekki alveg sammála Morgunblaðinu þó viss líkindi séu á valinu.

Lið handbolti.org er þannig skipað, talan í sviganum segir til um hversu oft leikmaður hefur verið valinn af handbolti.org.
Markvörður: Davíð Svansson, Aftureldingu (1)
Línumaður: Sigurður Ágústsson, FH (1)
Vinstri hornamaður: Sturla Ásgeirsson, ÍR (2)
Vinstri skytta: Róbert Aron Hostert, Fram (1)
Miðja: Örn Ingi Bjarkason, Aftureldingu (2)
Hægri skytta: Jóhann Gunnar Einarsson, Fram (2)
Hægri hornamaður: Árni Steinn Steinþórsson, Haukum (1).

Við óskum öllum þessum leikmönnum til hamingju með viðurkenningar sínar.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson