 Guðlaugur og Jóhann Gunnar eru þjálfarar 2. flokks

| | 25. október 2012 - Akureyri handboltafélag skrifarFyrstu heimaleikir 2. flokks um helginaLíkt og síðasta vetur þá er Akureyri með tvö lið í 2. flokki enda mikill fjöldi stráka sem æfir. Akureyri -1 leikur í 1. deildinni en Akureyri-2 er í 2. deild. Það eru sjö lið í 2. deildinni og leikin þreföld umferð. Á meðal liðanna eru ÍBV og Hörður frá Ísafirði. Eins og gefur að skilja þá er gríðarlegur ferðakostnaður fyrir þessi landsbyggðarlið og hafa þau því komið sér saman um að leika alla þrjá leikina í sömu ferðinni.
Þannig fór Akureyri-2 til Vestmannaeyja á dögunum og lék þrjá leiki gegn ÍBV. Akureyri vann sinn „heimaleik“ 31-28 en tapaði hinum tveim sem voru heimaleikir ÍBV, 29-23 og 26-20.
Nú um helgina kemur Hörður frá Ísafirði í heimsókn og verða á sama hátt leiknir þrír leikir. Á föstudaginn 26. október mætast liðin klukkan 19:30 og síðan tvívegis á laugardaginn. Fyrri leikurinn er klukkan 9:30 og sá seinni klukkan 14:30. Allir leikirnir verða í Íþróttahöllinni, föstudagsleikurinn er heimaleikur Harðar en laugardagsleikirnir eru heimaleikir Akureyrar-2.
Nú er bara að drífa sig í Höllina og hvetja ungu strákana til dáða. |