Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Oddur varð fyrir slæmum meiðslum á laugardaginn

30. október 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Óvissa um meiðsli Odds - málin skýrast á morgun

Eins og kunnugt er varð Oddur Gretarsson fyrir slæmum meiðslum á hné í leiknum gegn Haukum á laugardaginn. Oddur var sendur beint á Landspítalann til rannsóknar en ekki fengust óyggjandi niðurstöður um alvarleika meiðslanna þá.

Oddur fór síðan í ítarlega skoðun á Fjórðungshúsinu á Akureyri í dag og fær úrskurð lækna eftir þá rannsókn á morgun, miðvikudag.


Oddur finnur að hnéð hefur gefið sig. Mynd: Hilmar Þór/Sport.is


Hugað að Oddi. Mynd: Hilmar Þór/Sport.is


Oddur borinn út í sjúkrabíl. Mynd: Hilmar Þór/Sport.is

Vissulega óttast menn að fá slæmar fréttir en við lifum þó í voninni og getum vonandi flutt bærilegar fréttir af Oddi á morgun. Við sendum Oddi okkar bestu kveðjur og ósk um góðan bata.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson