Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Sveinbjörn fagnar góðri vörslu með Akureyri

2. nóvember 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Sveinbjörn kallaður í landsliðið gegn Rúmeníu

Á vef HSÍ er greint frá því að markvörðurinn Sveinbjörn Pétursson hafi verið kallaður inn í íslenska landsliðshópinn sem er á leið til Rúmeníu. Sveinbjörn kemur inn vegna veikinda Hreiðars Levý Guðmundssonar. Íslenska landsliðið leikur gegn Rúmenum á sunnudaginn klukkan 14:00.

Leikurinn verður sýndur á RÚV og hefst útsendingin klukkan 13:50.

Sveinbjörn sem stóð í markinu hjá Akureyri Handboltafélagi síðustu tvö tímabilin, leikur nú með þýska 2. deildarliðinu EHV Aue sem er í 10. sæti af 20 í augnablikinu.

Við sendum Sveinbirni hamingjuóskir með viðurkenninguna og vonumst til að sjá hann í leiknum á sunnudaginn.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson