Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það er ljóst að Oddur er ekki með í hóp í dag

8. nóvember 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikur dagsins í beinni textalýsingu

Þá er komið að heimaleik þar sem gestir okkar eru Valsmenn.

Leikurinn hefst að vanda klukkan 19:00 í Íþróttahöllinni og nú reynir á okkar menn og stuðningsmenn að sýna sínar bestu hliðar til að ná fram hagstæðum úrslitum.

Heimasíðan verður að venju með beina textalýsingu frá leiknum bæði er hægt að fylgjast með lýsingunni í sjálfstæðum glugga með ítarlegum upplýsingum um allan gang leiksins auk þess sem staðan og það allra nýjasta uppfærist á forsíðunni einnig og sama gildir um farsímavefinn okkar, þar uppfærist staðan einnig.
Smelltu hér til að opna lýsingarsíðuna.

Leikurinn hefst eins og áður segir klukkan 19:00 en fyrir leikinn er handhöfum Gullkorta boðið upp á heitan mat. Líkt og á undanförnum leikjum verður maturinn framreiddur í nýstækkaðri aðstöðu félagsins sem er við anddyri Hallarinnar (á vinstri hönd þegar gengið er inn). Maturinn verður framreiddur upp úr klukkan 18:00.

Fyrir leik verður danssýning frá POINT Dansstúdíói þannig að það er um að gera að mæta nokkuð tímanlega til að fylgjast með sýningunni þeirra.

Gaman fyrir börnin
Á síðustu heimaleikju hefur verið opið sérstakt leiksvæði fyrir börn, í gamla stuðningsmannaherberginu. Þar eru sett upp nokkur lítil mörk og margir mjúkboltar þar sem krakkarnir geta leikið sér af hjartans list. Að sjálfsögðu er gæsla í herberginu en þessi nýbreytni hefur mælst ákaflega vel fyrir.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson