Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það er allt í góðu á milli Geir og Stefáns Guðnasonar

12. nóvember 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Allt sem þú vildir vita um Geir Guðmundsson

Það er stutt í grínið hjá leikmönnum Akureyrar Handboltafélags og ekki verra þegar þeir grínast með liðsfélaga sína. Við komumst á snoðir um myndband sem Guðmundur Hólmar Helgason og Egill Ö. Gunnarsson gerðu um liðsfélaga sinn Geir Guðmundsson.

Myndbandið sem kallast Atvinnumaðurinn okkar mun vera hluti af verkefni þeirra félaga í námi þeirra í MA. Í þættinum er skyggnst inn í daglegt líf Geirs, bæði heima hjá honum svo og við æfingar og keppnir. Rætt við liðsfélaga hans og fleira, allt í léttum og skemmtilegum dúr.

Myndbandið sem var gert í apríl síðastliðnum er í tveim hlutum og hægt að horfa á það hér á síðunni:



Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson