Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Til hamingju Bjarni

17. nóvember 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Bjarni Fritzson hægri hornamaður umerða 1-7

Á föstudaginn tilkynnti HSÍ val á leikmönnum umferða 1-7 N1 deildar karla. Akureyri handboltafélag á einn fulltrúa í úrvalsliðinu en það er Bjarni Fritzson í stöðu hægri hornamanns. Þegar litið er á stöðuna í N1 deildinni kemur ekki mikið á óvart að leikmenn Hauka setji mark sitt á niðurstöðuna.

Stefán Rafn Sigurmannsson, Haukum var valinn besti leikmaður umferðanna og jafnframt besta vinstri skyttan. Niðurstöður HSÍ eru annars sem hér segir:

Úrvalslið umferða 1-7 í N1-deildinni:
Markvörður: Hlynur Morthens, Val
Vinstri hornamaður: Bjarki Már Elísson, HK
Vinstri skytta: Stefán Rafn Sigurmannsson, Haukum
Leikstjórnandi: Tjörvi Þorgeirsson, Haukum
Hægri skytta: Jóhann Gunnar Einarsson, Fram
Hægra horn: Bjarni Fritzsson, Akureyri
Línumaður: Jón Heiðar Gunnarsson, ÍR
Varnarmaður: Jón Þorbjörn Jóhannsson, Haukum

Besti þjálfari: Aron Kristjánsson, Haukum
Bestu dómarar: Gísli H. Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson
Besta umgjörð: ÍR.


Hópurinn við afhendingu viðurkenninganna. Mynd: handbolti.org

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson