Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Spámennirnir náðu sér vel á strik að þessu sinni

25. nóvember 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Getspakir spámenn í 9. umferð

Níundu umferð N1 deildar karla lauk í gær með leik Hauka og ÍR og þar með er hægt að fara yfir spádómana sem fólk skilaði inn að þessu sinni. Þrjátíu manns skiluðu inn spá og af þeim spáðu 28 rétt um sigur Akureyrar á Fram, 25 spáðu rétt um sigur Hauka á ÍR og álíka margir eða 24 spáðu rétt um sigur FH á Val. Það var hins vegar leikur Aftureldingar og HK sem reyndist flestum erfiður en einungis fjórir spáðu því að honum lyki með jafntefli eins og raunin varð.

Að þessu sinni náðu þrír að hafa alla fjóra leikina rétta, þetta voru: Daníel Þór Gunnarsson, Einar Ben og Guðmundur Páll Steindórsson. Jafnframt voru sautján manns sem náðu þremur réttum.

Að þessu sinni náði einn að spá hárréttum úrslitum í leik en Einar Ben spáði einmitt að leik Aftureldingar og HK lyki með jafntefli 28-28. Einar Ben er einmitt einn þeirra sem höfðu fjóra leiki rétta og telst því vera sigurvegari spáleiksins að þessu sinni.

Við opnum fyrir spádóma 10. umferðar á morgun, mánudag.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson