 Til hamingu Bergvin og Geir

| | 27. nóvember 2012 - Akureyri handboltafélag skrifarBergvin og Geir í úrvalsliði Handbolti.orgNú rétt í þessu var Handbolti.org að birta val sitt á úrvalsliði 9. umferðar í N1-deildinni. Akureyri Handboltafélag á tvo fulltrúa í liðinu að þessu sinni en það eru Bergvin Þór Gíslason í stöðu vinstri skyttu og Geir Guðmundsson í hlutverki hægri skyttunnar.
Annars er liðið þannig skipað, innan sviga er fjöldi skipta sem viðkomandi hefur verið valinn í úrvalslið Handbolti.org: Markvörður: Daníel Freyr Andrésson, FH (3) Línumaður: Pétur Júníusson, Aftureldingu (2) Vinstri hornamaður: Stefán Rafn Sigurmannsson, Haukum (3) Vinstri skytta: Bergvin Þór Gíslason, Akureyri (2) Miðjumaður: Garðar Svansson, HK (1) Hægri skytta: Geir Guðmundsson, Akureyri (2) Hægri hornamaður: Finnur Ingi Stefánsson, Val (2) Geir neglir á markið gegn Fram í síðustu umferð
 Bergvin á fullri ferð í Framleiknum Við óskum Begga og Geir til hamingju svo og öllum hinum leikmönnunum einnig.
Það er greinilegt að sitt sýnist hverjum þegar kemur að slíku vali og bendum við á að við erum nýbúin að birta val Morgunblaðsins. Þegar þessir tveir miðlar eru bornir saman kemur í ljós að þeir eru einungis sammála um Bergvin í vinstri skyttunni og Daníel í markinu. |