 Guđmundur Hólmar steig heldur betur upp í seinni hálfleiknum
| | 28. nóvember 2012 - Akureyri handboltafélag skrifarTap gegn ÍR í BreiđholtinuLeikur ÍR og Akureyrar bauđ upp á spennu og töluverđa dramatík. Jovan byrjađi á ţví ađ verja vítakast frá Sturlu en lítiđ var skorađ í upphafi. Bjarni Fritzon fór mikinn í byrjun en hann skorađi fjögur af fyrstu mörkum Akureyrar sem komst yfir í 4 – 5. ÍR-ingar svöruđu fyrir sig međ nćstu fjórum mörkum og höfđu yfirhöndina ţađ sem eftir lifđi fyrri hálfleiks en í hálfleik var stađan 13 – 11 fyrir ÍR.
Bjarni Fritzson var mjög ađsópsmikill međ 6 mörk í hálfleiknum en hin fimm mörkin skiptust á fimm leikmenn. Sóknarleikurinn gekk ekki sem skyldi, töluvert um slök skot. Vörnin var ţokkaleg og Jovan međ fínan leik í markinu, 11 varin skot. Bjarni Fritzson skartađi glóđarauga í kvöld. Mynd: Hilmar Ţór/sport.is Akureyri byrjađi seinni hálfleikinn af krafti og jafnađi í 14 – 14. Bergvin Ţór Gíslason var gríđarlega sterkur á ţessum tíma og sýndi sínar bestu hliđar. Guđmundur Hólmar Helgason kom Akureyri yfir í stöđunni 15 – 16 og leikurinn í járnum og jafnt á öllum tölum frá 14 – 14 og upp í 22 – 22.
Guđmundur Hólmar Helgason tók heldur betur af skariđ í sóknarleiknum og skorađi sex mörk Akureyrar í röđ, öll međ bylmingsskotum utan af velli. Guđmundur Hólmar Helgason brýst í gegnum vörn ÍR í leiknum í kvöld. mbl.is/Ómar Markvörđurinn Tomas Olason kom inná í sínum fyrsta meistaraflokksleik, til ađ spreyta sig á vítakasti og varđi ţađ međ tilţrifum, flott innkoma ţađ.
Í stöđunni 22 – 22 misstu menn einbeitinguna smástund og ţađ nýttu ÍR-ingar til ađ ná ţriggja marka forskoti, 26-23. Ţađ forskot tókst aldrei ađ vinna upp en ÍR-skoruđu síđasta mark leiksins og fögnuđu tveggja marka sigri 28 – 26.
Í seinni hálfleiknum gekk sóknin býsna vel en ađeins virtist vanta upp á einbeitingu í varnarleiknum. Markvarslan var ţokkaleg en báđir markverđirnir vörđu t.d. sitt hvort vítakastiđ í hálfleiknum. Tomas Olason handsamar boltann eftir ađ hafa variđ vítakast. Mynd: Hilmar Ţór/sport.is Mörk Akureyrar: Bjarni Fritzson 9 (2 úr vítum), Guđmundur Hólmar Helgason 8, Bergvin Ţór Gíslason 5, Geir Guđmundsson 2, Heimir Örn Árnason og Hreinn Hauksson 1 mark hvor. Jovan Kukobat var međ 19 skot varin, ţar af 2 vítaköst og Tomas Olason varđi 1 víti eins og áđur segir.
Hjá ÍR var Sturla Ásgeirsson markahćstur međ 7 mörk (3 úr vítum), Ingimundur Ingimundarson og Sigurjón Friđbjörn Björnsson međ 5 mörk.
Fleiri myndir Hilmars Ţórs frá leiknum eru komnar inn á sport.is. Eftir sem áđur er Akureyri í 2. sćti deildarinnar og nú ţýđir ekkert annađ en ađ gíra sig upp fyrir laugardaginn en ţá fara strákarnir í Mosfellsbćinn og mćta ţar Aftureldingu í bikarkeppninni. |