Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Kærkomið jólafrí hjá körlunum

11. desember 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Breyting á deildarbikarkeppni karla

Undanfarin ár hefur deildarbikarkeppni HSÍ farið fram á milli jóla og nýárs þar sem efstu fjögur lið deildarinnar keppa. Nú hefur verið gerð sú breyting á að karlarnir spila sína leiki ekki fyrr en í lok janúar, eða nánar tiltekið 26. og 27. janúar.
Þetta er gert vegna þess að A-landslið karla leikur við Túnis dagana 28. og 29. desember.

Eflaust verða ýmsir leikmenn þessu fegnir að fá frí milli jóla og nýárs en í staðinn fá liðin ágætis upphitunarmót áður en alvaran í N1-deildinni hefst á ný í febrúar.

Deildarbikar kvenna verður hins vegar leikinn á svipuðum tíma og venjulega þ.e.a.s. 27. og 28 desember. Fyrri daginn verður leikið í Íþróttahúsinu í Strandgötu (Hafnarfirði) en úrslitaleikurinn verður í Laugardalshöll.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson