Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Baldur tók við verðlaununum

21. desember 2012 - Akureyri handboltafélag skrifar

Spámannaverðlaunin afhent

Við vorum með sérstök verðlaun í boði fyrir spámann 11. umferðar N1-deildarinnar hér á heimasíðunni. Líkt og við kynntum á dögunum var það Helga S Steingrímsdóttir sem stóð uppi sem sigurvegari þeirrar umferðar en hún var ein með rétt úrslit í öllum fjórum leikjunum.

Verðlaunin voru hinn glæsilegi kennsludiskur Frá byrjanda til landsliðsmanns. Það var sonur Helgu, Baldur Halldórsson sem tók við diskinum fyrir hönd móður sinnar. Við óskum Helgu til hamingju með verðlaunin og ekki þarf að efast um að diskurinn verður settur í spilarann um jólin enda mikill handboltaáhugi á heimilinu.


Baldur tekur við verðlaunum móður sinnar

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson