Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Góð byrjun hjá íslensku strákunum



5. janúar 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

U-21: Sigur á Úkraínu í fyrsta leik

U-21 árs landslið karla sigraði í gær Úkraínu 27-25 í fyrsta leik sínum í undankeppni HM en leikið er í Panningen í Hollandi um helgina.

Staðan í hálfleik var 12-12. Úkraína var yfir meiri hluta fyrri hálfleiks, en íslenska liðið náði að jafna leikinn rétt fyrir hálfleik. Ísland byrjaði betur í seinni hálfleik, komst tveimur mörkum yfir, en Úkraínumenn svöruðu fyrir sig og komust í 19-17.
Ísland átti þá góðan kafla og skoraði 5 mörk í röð og hélt þeirri forystu til leiksloka. Geir Guðmundsson innsiglaði sigur Íslands með marki 35 sekúndum fyrir leikslok.

Mörk Íslands í leiknum skoruðu: Kristján Orri Jóhannsson 6, Geir Guðmundsson 4, Janus Daði Smárason 3, Ísak Rafnsson 3, Guðmundur Hómar Helgason 2, Sveinn Aron Sveinsson 2, Árni Benedikt Árnason 2, Garðar Sigurjónsson 2, Gunnar Malmguist 2 og Einar Sverrisson 1.

Í dag, laugardag mætir Ísland Hollandi kl.19.00. og á sunnudaginn er leikur gegn Slóveníu.

Hér er hægt að fylgjast með stöðu í öllum leikjum sem eru í gangi á mótinu.

Hér er svo hægt að skoða allar upplýsingar um mótið, stöðu í riðlum og ýmsa tölfræði.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson