Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Kærkomnir æfingaleikir gegn Selfyssingum

11. janúar 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

Æfingaleikir gegn Selfyssingum um helgina

Nú þegar deildarkeppnin liggur niðri vegna landsliðsverkefna fær meistaraflokkur Akureyrar kærkomið tækifæri til keppni þegar 1. deildarlið Selfoss kemur í heimsókn. Selfyssingar leika undir stjórn Arnars Gunnarssonar, betur þekktur sem Addi Maze eru sem stendur í 4. sæti 1. deildar.

Liðin mætast í tveimur æfingaleikjum, fyrri leikurinn er í KA-heimilinu klukkan 18:00 í dag, föstudag og síðan mætast liðin aftur í Íþróttahöllinni klukkan 10:00 á laugardagsmorgun.

Þó að þetta séu aðeins æfingaleikir er fólki að sjálfsögðu velkomið að koma og fylgjast með.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson