Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Stjarnan verður mótherji Akureyringa í Undanúrslitunum

15. febrúar 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

Akureyri mætir Stjörnunni í Undanúrslitum Símabikarsins

Nú hefur verið dregið í Undanúrslitin í Símabikarnum og það verður 1. deildarlið Stjörnunnar sem verður mótherji okkar manna. ÍR mætir svo 1. deildarliði Selfoss í hinum leiknum. Nýtt fyrirkomulag er í Bikarnum í ár en Undanúrslitin verða leikin í Laugardalshöll og tveim dögum síðar verður Úrslitaleikurinn spilaður.

Leikurinn á móti Stjörnunni fer fram þann 8. mars sem er föstudagur og eins og áður kom fram er leikið í Laugardalshöll. Úrslitaleikurinn fer svo fram 10. mars sem er sunnudagur.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson