 Valið snýst um að sjá leikinn í Austurberginu eða í sjónvarpinu
| | 2. mars 2013 - Akureyri handboltafélag skrifarLeikur dagsins: ÍR – Akureyri sæti í úrslitakeppninni í húfiAkureyri mætir í Austurbergið og mætir þar ÍR í dag, 2. mars klukkan 15:00. Eftir sigurinn á FH er það ljóst að þessi leikur skiptir sköpum ef Akureyri ætlar að berjast um sæti í Úrslitakeppninni! Þessi leikur er gríðarlega mikilvægur fyrir bæði liðin því þetta eru einmitt liðin sem eru í hörðustu baráttunni um 4. sætið í úrslitunum.
ÍR liðið er erfitt heim að sækja og hefur aðeins tapað einum leik á heimavelli á tímabilinu, það var gegn Haukum í fyrsta heimaleiknum í haust. ÍR vann Akureyri í 10. umferðinni með tveim mörkum 28-26 en Akureyri vann ÍR hér í Höllinni 32-23. Frá leik liðanna í Höllinni í haust, spurning hvort Bjarni verður inni á vellinum eða í þjálfarahlutverfinu? Fjöldi stráka úr 2. flokki er að spila fyrir sunnan um helgina og munu þeir örugglega setja svip á stúkuna í Austurbergi og hvetjum við alla stuðningsmenn á Höfuðborgarsvæðinu til að mæta í Austurbergið og kynda undir alvöru baráttustemmingu.
RÚV sýnir leikinn í dag í beinni sjónvarpsútsendingu þannig að þeir sem ekki komast á leikinn geta fylgst með þar. |