 Það skiptir máli hvar maður kaupir miða á leikina
| | 4. mars 2013 - Akureyri handboltafélag skrifarMiðasala á bikarúrslitaleikinaÞað styttist óðum í bikarúrslitahelgina og rétt að stuðningsmenn fari að hyggja að miðakaupum. Félögin sem eiga lið í úrslitakeppninni fá ákveðinn fjölda miða til að selja á sína leiki og eru það í rauninni einu tekjur þeirra af miðasölunni.
Við hvetjum því stuðningsmenn Akureyrar Handboltafélags til að kaupa miðana á sölustöðum félagsins. Forsala er í gangi nú þegar á leik Akureyrar og Stjörnunnar hjá BK-Kjúklingur á Grensásvegi í Reykjavík og veitingastaðnum Bryggjan, Skipagötu 12 á Akureyri. Einnig verður hægt að kaupa miða fyrir leikinn í Ölveri Glæsibæ þar sem stuðningsmenn Akureyrar ætla að koma saman fyrir leik, og væntanlega í anddyri Laugardalshallarinnar. Miðar á þann leik kosta 1.000 kr. fyrir 13 ára og eldri en frítt fyrir 12 ára og yngri.
Ef allt fer að óskum og Akureyri kemst í úrslitaleikinn á sunnudaginn getur Akureyri byrjað að selja sína miða í Laugardalshöllinni strax eftir föstudagsleikinn. Við munum auglýsa frekar um aðra sölustaði þegar það skýrist. Miðar á úrslitaleikinn kosta 1.500 kr. fyrir 13 ára og eldri en frítt fyrir 12 ára og yngri.
 |