Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Endapunktur á handboltavertíðinni í ár

9. maí 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

Lokahóf Akureyrar á laugardaginn

Nú styttist í árlegt lokahóf Akureyrar Handboltafélags þar sem leikmenn, stjórnarmenn og boðsgestir hittast ásamt mökum og gera sér glaðan dag. Hófið verður í Íþróttahöllinni og hefst klukkan 20:00. Að vanda verður tímabilið gert upp og veittar ýmsar viðurkenningar.

Hefð er fyrir að verðlauna bestu og efnilegustu leikmenn tímabilsins og að sjálfsögðu verða niðurstöður kynntar hér á heimasíðunni í kjölfarið.

Ljóst er að nokkrir leikmenn róa á önnur mið næsta tímabil og aðrir nýir mæta til leiks. Ýmislegt hvað það verður verður væntanlega kynnt á laugardagskvöldið.


Verðlaunahafar á lokahófinu 2012

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson