 Bæði lið voru sátt við að fá æfingaleik
| | 14. ágúst 2013 - Akureyri handboltafélag skrifarSigur á ÍR í æfingaleikAkureyrarliðið hóf Þýskalandsferð sína með því að keyra til Reykjavíkur í gær og síðan var tekinn æfingaleikur við bikarmeistara ÍR. Vissulega var þetta dæmigerður æfingaleikur en samt tóku menn vel á í handboltanum. Spilaðar voru 3x20 mínútur og fengu allir leiksmenn beggja liða að spreyta sig.
Akureyri fór með fimm marka sigur af hólmi og voru menn afar sáttir með leikinn, ekki síst þar sem þetta var fyrsti æfingaleikur liðsins á tímabilinu. Og fínt að fá smá leikæfingu fyrir æfingamótið sem er framundan, enda engin smálið sem strákarnir þurfa að glíma við þar. |