 Jovan og Gunnar komu heldur betur við sögu í leiknum


| | 17. ágúst 2013 - Akureyri handboltafélag skrifarÞýskalandspistill nr. 3 - laugardagsleikurinnAkureyri vann flottan sigur á þýska 3. deildarliðinu Dessau í leik þar sem úrslitin réðust í vítakeppni eftir að liðin skildu jöfn að lokum venjulegum leiktíma.
Leikmenn Akureyrar komu gríðarlega vel stemmdir í leikinn og var 3-2-1 vörn liðsins gríðarlega sterk þar sem allir skiluðu sínu.
Jovan varði mjög vel allan leikinn og var eins og klettur fyrir aftan vörnina. Staðan í hálfleik var 13-10 Akureyri í vil. Valþór Atli var gríðarlega sprækur og virtist alltaf skora þegar hann kastaði í áttina að markinu, setti 5 mörk í fyrri hálfleik. Vörnin hreint út sagt frábær þar sem menn börðust eins og ljón og stemmingin í liðinu eftir því.
Fyrsta korterið í seinni hálfleik gekk nánast allt upp hjá Akureyri og staðan 21-14 þegar korter lifði leiks. Þá kom upp atvik sem kveikti í liðsmönnum Dessau en hins vegar slökkti svo sannarlega í okkar mönnum. Gunnar Malmquist sveif inn úr vinstra horninu og Stefan Schwalb varnarmaður Dessau beitti svokölluðu júggabragði á Gunnar sem steyptist harkalega í gólfið. Uppskar Schwalb réttilega rautt spjald fyrir vikið. Eftir þetta var leikmönnum Akureyrar fyrirmunað að skora mark og söxuðu Dessau menn hægt og rólega á forskotið. Þegar 5 mínútur voru eftir var munurinn orðinn 3 mörk. Lélegur sóknarleikur Akureyrar hélt áfram og Dessau jafnaði þegar mínúta lifði leiks. Ekki tókst okkur að skora og Dessau menn fengu dauðafæri í lokin til að vinna leikinn en besti maður vallarins, Jovan Kukobat, varði sem betur fer og fór leikurinn 22-22.
Engin framlenging var heldur farið rakleiðis í vítakeppni. Skemmst er frá því að segja að Jovan hélt uppteknum hætti og varði 3 af 4 vítum Dessau manna og sigurinn í höfn þar sem Hreinn, Bjarni Fritz og Valþór skoruðu úr sínum vítum. Magnaður sigur þrátt fyrir arfaslaka sókn síðasta korter leiksins.
Markaskorarar Akureyrar voru: Valþór Atli 6, Bjarni Fritz 5, Kristján Orri 4, Gunnar Malmquist 2, Sigþór Árni 1, Vladimir 2, Daníel Matt 2 Varin skot: Jovan 21
Menn leiksins voru Jovan Kukobat og vörnin þar sem ómögulegt er að taka einn út úr, frábær liðsheild sérstaklega fyrstu 50 mínútur leiksins. |