 Ţađ styttist í fyrsta alvöruleikinn
| | 15. september 2013 - Akureyri handboltafélag skrifarLeikmannahópur Akureyrar í veturNú ţegar einungis nokkrir dagar eru í fyrstu umferđina í úrvalsdeildinni sem nú kallast Olís-deildin er ekki úr vegi ađ renna yfir leikmannahópinn sem Akureyri teflir fram í vetur.
Leikmenn sem komiđ hafa til liđ viđ okkur síđan í vor eru: Gunnar K. Malmquist Ţórsson frá Val, Halldór Logi Árnason frá ÍR, Kristján Orri Jóhannsson frá Gróttu, Vladimir Zejak frá Rk Crvenka í Serbíu og Ţrándur Gíslason frá Aftureldingu.
Ţeir sem fóru annađ eru: Ásgeir Jóhann Kristinsson til Víkings, Geir Guđmundsson til Vals, Guđmundur Hólmar Helgason til Vals, Halldór Örn Tryggvason til Hamranna, Oddur Gretarsson til TV Emsdetten í Ţýskalandi og Stefán Guđnason til Hamranna.
Heimir Örn Árnason ćtlar ađ einbeita sér ađ ţjálfun liđsins í vetur, og hugsanlega styrkja Hamrana í leikjum í 1. deildinni. Auk ţess hefur línumađurinn Ásgeir Jónsson lagt skóna á hilluna eftir langvarandi meiđsli en verđur sérlegur ađstođarmađur Heimis Arnar á bekknum. Hörđur Fannar Sigţórsson sem meiddist í upphafi fyrsta leiksins í fyrra er fluttur til Fćreyja og óvíst um ţátttöku hans í handbolta í vetur.
Heimir Örn Árnason og Bjarni Fritzson eru ţjálfarar eins og síđasta tímabil. Leikmannahópurinn er ţannig skipađur:
Andri Snćr Stefánsson, hornamađur Arnór Ţorri Ţorsteinsson, vinstri skytta nýliđi úr yngri flokkum Bergvin Gíslason, skytta (meiddur) Bjarni Fritzson, hćgra horn og ţjálfari Daníel Matthíasson, línumađur Friđrik Svavarsson, línumađur Gunnar K. Malmquist Ţórsson, hornamađur, kemur úr Val Halldór Logi Árnason, línumađur, snýr aftur eftir tveggja ára dvöl hjá ÍR Heiđar Ţór Ađalsteinsson, hornamađur Hreinn Hauksson, línumađur Jovan Kukobat, markvörđur Jón Heiđar Sigurđsson, skytta Kristján Orri Jóhannsson, hornamađur, kemur frá Gróttu Kristján Már Sigurbjörnsson, hornamađur Páll Jónsson, markvörđur Sigţór Heimisson, leikstjórnandi Tomas Olason, markvörđur Valţór Guđrúnarson, skytta Vladimir Zejak, skytta kemur frá Rk Crvenka í Serbíu Ţrándur Gíslason, línumađur, kemur frá Aftureldingu
Í raun ćtti ađ telja ţá Daníel Matthíasson og Kristján Má Sigurbjörnsson međ í hópi nýliđa en ţeir komu raunar örlítiđ viđ sögu hjá meistaraflokki í fyrravetur. Sama má segja um Pál Jónsson markvörđ en hann hefur einu sinni veriđ á leikskýrslu hjá meistaraflokki. Allir hafa ţeir leikiđ međ 2. flokki Akureyrar og yngri flokkum Akureyrarfélaganna. Páll varđ t.d. Íslandsmeistari međ 2. flokki voriđ 2012.
Sjá leikmannalistann fyrir nánari upplýsingar um leikmennina. |