Heimasíđan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Nćstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Ţú flettir milli frétta međ örvalyklunum eđa smellir á bláu örvarnar! 

Jovan og Valţór Guđrúnarson fóru fyrir sínum mönnum í dag



19. september 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

Sannfćrandi sigur Akureyrar í fyrsta leik

Ţađ var ekki laust viđ ađ ţađ vćri taugatitringur í leikmönnum og áhorfendum í Íţróttahöllinni ţegar Akureyri og Fram mćttust í opnunarleik Olís-deildarinnar. Gríđarlega öflugur varnarleikur og frábćr markvarsla gerđi ţađ ađ verkum ađ nánast engin mörk voru skoruđ framan af leiknum. Ţannig var stađan 3-3 ţegar leikiđ hafđi veriđ í rúmar 20 mínútur.


Markaskorunin framan af leik minnti á knattspyrnuleik

Ţađ var síđan Akureyri sem tók völdin á lokamínútum fyrri hálfeiks og leiddi međ ţrem mörkum, 9-6 í hálfleik.

Akureyrarliđiđ mćtti hins vegar af miklum krafti í seinni hálfleikinn og tók leikinn gjörsamlega í sínar hendur. Vörn og markvarsla var áfram til fyrirmyndar og viđ bćttist árangursríkur sóknarleikur. Akureyri jók forskotiđ jafnt og ţétt sem varđ mest átta mörk, 21-13 og 23-15. Lokatölur urđu öruggur sigur Akureyrar 25-18.

Eins og áđur segir var fyrri hálfleikurinn ekki mjög áhugaverđur en óhćtt ađ segja ađ strákarnir hafi veriđ mjög flottir í ţeim seinni. Jovan Kukobat átti stórleik í markinu og Valţór Guđrúnarson var í miklum ham í sókninni sem skilađi honum 8 mörkum. Kristján Orri Jóhannsson sýndi í seinni hálfleiknum ađ hann kann ýmislegt fyrir sér og skorađi 5 mörk í honum. Ungu strákarnir Sigţór, Arnór, Gunnar Malmquist og Jón Heiđar áttu virkilega flotta spretti og verđur gaman ađ fyljgast međ ţeim í nćstu leikjum.


Jovan og Ţrándur áttu skínandi leik í dag

Varnarleikur liđsins var frábćr allan leikinn og gaman ađ sjá baráttustemminguna sem skilađi ţessum fína sigri á Íslandsmeisturunum sem gćtu átt erfiđan vetur framundan.

Mörk Akureyrar: Valţór Guđrúnarson 8, Kristján Orri Jóhannsson 5, Bjarni Fritzson og Sigţór Heimisson 3 hvor, Ţrándur Gíslason 2, Arnór Ţorri Ţorsteinsson, Gunnar Malmquist, Halldór Logi Árnson og Jón Heiđar Sigurđsson 1 mark hver.
Í markinu var Jovan Kukobat međ 15 varin skot og var valinn mađur Akureyrarliđsins í leiknum.

Mörk Fram: Sigfús Páll Sigfússon 5, Sigurđur Örn Ţorsteinsson og Stefán Baldvin Stefánsson 4 hvor, Garđar Sigurjónsson og Ólafur Magnússon 2 mörk hvor og Sveinn Ţorgeirsson 1 mark.
Steffan Nielsen varđi 8 skot og Svavar Már Ólafsson 1 skot. Sigfús Páll var valinn mađur Framliđsins í leiknum.

Bendum á linka efst á síđunni til ađ skođa myndir, tölfrćđi og allt um gang leiksins.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síđu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson