Heimasíđan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Nćstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Ţú flettir milli frétta međ örvalyklunum eđa smellir á bláu örvarnar! 

ÍBV mćta sterkir til leiks í Olís-deildinni

2. október 2013 - Akureyri handboltafélag skrifar

Um ÍBV mótherja Akureyrar á laugardaginn

Ţađ eru fimm ár síđan ÍBV lék síđast í úrvalsdeild en síđasti leikur liđsins voriđ 2008 var einmitt gegn Akureyri. Vestmannaeyingar unnu 1. deildina međ töluverđum yfirburđum síđasta vor og ćtla án vafa ađ berjast í efri hluta úrvalsdeildarinnar í ár.

Ţeir hafa styrkt liđ sitt mikiđ fyrir átökin í vetur. Ţar ber fyrst ađ nefna ađ ţeir réđu nýjan ţjálfara, Gunnar Magnússon sem hefur veriđ ađstođarlandsliđsţjálfari undanfarin ár auk ţess ađ ţjálfa Kristiansund, liđ Jónatans Magnússonar í Noregi síđastliđin ţrjú ár.

ÍBV hefur einnig fengiđ til sín öfluga leikmenn, athygli vakti í haust ţegar Róbert Aron Hostert, fyrrum leikmađur Fram hćtti viđ ađ fara erlendis en gekk til liđs viđ Eyjamenn. Tveir erlendir kappar komu til liđsins, hćgri skyttan Filip Scepanovic, frá Serbíu sem er gríđarlega reyndur leikmađur svo og slóvenskur línumađur, landsliđsmađurinn Matjaz Mlakar.
Ţá fengu ţeir Agnar Smára Jónsson frá Val og hafa endurheimt Andra Heimi Friđriksson úr meiđslum.

Eini leikmađurinn sem ÍBV hefur misst frá ţví í fyrra er Nemanja Malovic sem átti reyndar frábćrt tímabil í fyrra og var langmarkahćsti mađur liđsins í 1. deildinni.

Akureyringar munu án efa taka vel á móti skyttunni, Magnúsi Stefánssyni frá Fagraskógi en ţessi fyrrum leikmađur Akureyrar hefur veriđ í herbúđum Eyjamanna síđastliđin tvö ár. Magnús lék síđast međ Akureyri ţann 3. maí 2008 en ţađ var einmitt gegn ÍBV. Um haustiđ gekk Magnús til liđs viđ Fram og lék međ ţeim ţar til hann fluttist til Eyja.


Magnús í síđasta leik međ Akureyri, einmitt gegn ÍBV voriđ 2008

Eyjamenn hófu úrvalsdeildina međ glćsilegum átta marka sigri á bikarmeisturum ÍR. Ţeir voru fjórum mörkum undir í hálfleik en tóku öll völd á vellinum í seinni hálfleik og völtuđu yfir heimamenn. Ţar var Theodór Sigurbjörnsson markahćstur međ 8 mörk, Róbert Aron Hostert međ 6 og Grétar Ţór Eyţórsson međ 5 mörk, Matjaz Mlakar 2, Andri Heimir Friđriksson 2, Filip Scepanovic 2, Sindri Haraldsson 1, Guđni Ingvarsson 1 og Magnús Stefánsson 1. Varnarleikur liđsins small saman í seinni hálfleiknum undir forystu Sindra Haraldssonar og ţar fyrir aftan átti markvörđurinn Haukur Jónsson stórleik.


Róbert Hostert í kunnuglegri stellingu. Mynd: Andri Marinó Karlsson sport.is


Eyjamenn fagna sigri í 1. umferđ. Mynd: Andri Marinó Karlsson sport.is

Í síđustu umferđ fengu Eyjamenn Hauka í heimsókn og má segja ađ sá leikur hafi ţróast gjörólíkt ÍR leiknum, jafnt var í hálfleik 10-10 en í seinni hálfleik hrundi leikur ţeirra og Haukar unnu tólf marka sigur 18-30. Ţess má geta ađ varnarjaxlinn Sindri fékk beint rautt spjald og trúlega veikti ţađ vörnina verulega.
Í leiknum gegn Haukum var markaskorun liđsins ţannig: Andri Heimir Friđriksson 4,Filip Scepanovic 3, Agnar Smári Jónsson 2, Matjaz Mlakar 2, Theodór Sigurbjörnsson 2, Grétar Eyţórsson 2, Magnús Stefánsson 1, Róbert Aron Hostert 1 og Guđni Ingvarsson 1.

Atkvćđamestu leikmenn ÍBV í fyrra, fyrir utan Nemanja, voru ţeir Theodór og Andri Heimir međ 95 mörk í deildinni, Grétar Ţór Eyţórsson međ 89 mörk og Magnús Stefánsson međ 58 mörk.

Ţađ má bóka hörkuleik á laugardaginn ţar sem bćđi liđin ćtla sér ađ kvitta fyrir tapađa leiki síđustu umferđar. Leiktíminn er raunar mjög óvenjulegur, klukkan 13:30 á laugardegi sem stafar af ţví ađ Eyjamenn ţurfa ađ komast heim áđur en flugvöllurinn í Eyjum lokar.

Sjáumst í Höllinni á laugardaginn og muniđ ađ minna alla áhugamenn um handbolta á ţessa óvanalegu tímasetningu leiksins.

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síđu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson